Nýjungar og betrumbætur í AVIA
Í sumar höfum við unnið hörðum höndum að ýmsum nýjungum og betrumbótum á AVIA kerfinu til að bæta upplifun notenda. Hér eru helstu breytingarnar:
-
Stýring á kerfishlutum: Notendaviðmótið hefur verið yfirfarið og nú er auðvelt að kveikja eða slökkva á stökum kerfishlutum undir:
Stjórnborð > Stillingar > Kerfishlutar -
Sjálfvirk símaskrá: Nýr valkostur er í boði undir kerfishlutum þar sem hægt er að virkja sjálfvirka símaskrá. Kerfið býr hana til upp úr skráðum notendum og kerfisstjórar geta stýr hvaða deildir, starfsfólk birtist þar.
-
Gagnlegir hlekkir og AVIA appið: Útlit Gagnlegra hlekka hefur verið uppfært. Þá hefur nýrri síðu verið bætt við í vinstri valstikuna með öllum helstu leiðbeiningum um hvernig notendur sækja og hefja notkun á AVIA appinu.
-
Auðveldari skráning á endurtekin námskeið: Einfaldara er nú að skrá starfsfólk á námskeið sem starfsfólk þar að fara í gegnum reglulega (t.d. árlega).
-
Sérsniðnar tilkynningar: Nú er hægt að breyta nafni sendanda og netfangi á öllum sjálfvirkum tilkynningum sem sendar eru úr AVIA.
Endilega hafðu samband við þjónustuteymið okkar fyrir aðstoð og allar frekari upplýsingar. hjalp@akademias.is