15. október. 2026

Nýjungar í AVIA

Öflugri námskeiðssmiður
Nýr og öflugri námskeiðssmiður auðveldar að búa til fjölbreytt námskeið með texta, myndum, myndböndum, skjölum, SCORM-pökkum og fleiru.

Þemamánuðir á forsíðu
Þemamánuðir er nýr eiginleiki til að halda utan um tímabundin fræðsluátök. Þemu birtast á forsíðu, með skýrslum um framvindu og áminningum fyrir nemendur og stjórnendur. Þær eru búnar til í stjórnborði/skóli/Þemu

Námskeið á heilum skjá
Námskeið birtast nú á heilum skjá til að veita betri yfirsýn og þægilegri námsupplifun.

Einfalt að afrita námskeið
Nú er auðvelt að afrita námskeið og aðlaga að þörfum vinnustaðarins eða ákveðinna hópa. Hægt er að breyta afritinu á meðan upprunalega námskeiðið helst óbreytt.

Uppfærðar Excel-skýrslur
Excel-skjöl sem sótt eru úr skýrslum hafa verið uppfærð.

Auk þess hafa verið gerðar ýmsar smærri lagfæringar og endurbætur.

Við hvetjum ykkur til að senda fræðsluráðgjöfinni línu á radgjöf@akademias.is. Við sýnum ykkur nýjungarnar og förum saman yfir hvernig þær geta nýst á ykkar vinnustað.

 

Til baka