Til að auka þjónustuna og gera daglega notkun einfaldari höfum við gert umbætur í kerfinu:
Aukinn hraði
Við höfum endurbyggt innviði með það markmið að auka hraða á kerfinu. Núna erum við að sjá allt að tífalda hraðaaukningu á umhverfinu.
Bættar skýrslur
Til að auka yfirsýn eru nú í boði skýrari og uppfærðari skýrslu sem gera eftirfylgni og greiningu einfaldari. Nýjasta skýrslan heitir Námshópaskýrsla en þar er mælaborð yfir notkun fræðsluefnis, auk þess sem hægt er að sía niður á einstök námskeið, flokka eða lærdómshópa til að sjá skýrari notkun.
Einfaldari umsýsla á fræðslu
Til hagræðingar er nú auðveldara að vinna með námsflokka, námshópa og SCORM efni í daglegri umsýslu. Þetta er núna allt aðgengilegt á vinstri valstikunni í stjórnborðinu
Skýrari tilkynningar
Tilkynningar úr kerfinu eru orðnar einfaldari og markvissari — þannig missir enginn af því sem skiptir máli. Til hagræðingar þá líka hægt að skipuleggja tilkynningar fram í tímann. Tilkynningarnar eru núna settar upp og þeim stýrt frá stjórnborðinu.
Bætt notendaviðmót
Nú geta notendur afskráð sig af námskeiðum sem þeir hafa kannski bara verið að skoða
Við vonum að þessar breytingar geri upplifunina þægilegri og skilvirkari 😊