Nýjar skýrslur, námskeiðsmerkingar, Verktakar/tímabundnir starfsmenn og betri stuðningur við staðnámskeið
Við höfum bætt við nokkrum gagnlegum nýjungum í AVIA sem gera kerfið skýrara, þægilegra í notkun og auðvelda stjórnendum að fylgjast með þátttöku og framvindu.
Nýjar og endurbættar skýrslur
Skýrslurnar í AVIA hafa verið einfaldaðar og eru nú þrjár fyrir: Notendur, Hópar og Námskeið. Við höfum jafnframt samræmt viðmót skýrslnanna, bætt við fleiri síum og aukið möguleika á að skoða ólíkar breytur eftir þörfum.
Markmiðið er að gera stjórnendum auðveldara að finna réttu upplýsingarnar, greina stöðuna og fá betri yfirsýn yfir notkun og námsframvindu.
Ný merking fyrir skyldunámskeið
Nú er hægt að merkja námskeið sem skyldunámskeið þegar notendur eru skráðir í þau. Skyldunámskeið birtast fremst undir Mín námskeið þegar notendur skrá sig inn og eru auðkennd með sérstakri merkingu.
Í skýrslunum er einnig hægt að sía eftir skyldunámskeiðum, sem auðveldar stjórnendum að fylgjast með því hverjir hafa lokið þeim og hverjir eiga þau enn eftir.
Verktakar og tímabundnir starfsmenn
Við höfum bætt við nýju hlutverki í AVIA fyrir verktaka og tímabundna starfsmenn. Notendur með þetta hlutverk sjá ekkert í kerfinu nema þau námskeið sem þeir eru skráðir í.
Þetta hentar til dæmis vel þegar verktakar þurfa að ljúka ákveðnum skyldunámskeiðum, svo sem öryggisnámskeiðum sem þarf að taka árlega. Þá er hægt að stilla endurtekna skráningu á námskeiðið, til dæmis einu sinni á ári, og nýju skýrslurnar gera eftirfylgnina mun einfaldari og skýrari en áður.
Betri stuðningur við staðnámskeið / Webinars
Við höfum einnig bætt stuðning við staðnámskeið. Nú er hægt að setja upp bæði stök og endurtekin staðnámskeið sem fara fram á ákveðnum tíma og hafa skilgreint skráningartímabil.
Einnig er hægt að búa til biðlista og stýra betur því hver fær sæti á námskeiði. Þetta nýtist sérstaklega vel þegar fjöldi þátttakenda er takmarkaður eða þegar halda þarf utan um skráningar með skýrari hætti.
Þessar nýjungar eru hluti af áframhaldandi þróun AVIA og eiga að gera kerfið enn betra fyrir stjórnendur, fræðsluteymi og starfsfólk.
Hafðu samband ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt kennslu. hjalp@akademias.is