6. september. 2026

Fræðsluáætlanir og fræðsluvísitala í AVIA

Nú er einfaldara en nokkru sinni að skipuleggja fræðslu, halda henni á réttri braut og fylgjast með árangri í AVIA.

Fræðsluáætlun er stofnuð í Stjórnborði undir Námskeið > Fræðsluáætlun. Þar velja stjórnendur heiti áætlunarinnar, tímabil, námskeið og þá námshópa sem eiga að taka þátt.

Þegar áætlunin hefur verið virkjuð birtist hún efst á skjá notenda við innskráningu. Þar geta þeir fylgst með eigin framvindu. Fræðsluvísitalan veitir jafnframt skýra yfirsýn yfir stöðu fræðslunnar og auðveldar samanburð á framvindu deilda.

Stjórnendur geta tímasett áminningar til starfsfólks svo fræðslan haldist á réttri braut. Einnig er hægt að tímasetja sjálfvirkar áminningar til stjórnenda með mannaforráð, svo þeir geti fylgst með árangri sinnar deildar í samanburði við aðrar deildir vinnustaðarins.

Hafðu samband við ráðgjafa okkar til að fá nánari kynningu eða aðstoð við að setja upp fræðsluáætlun í AVIA. hjalp@akademias.is 

 

Til baka