Fræðsluþættir

Rafræn námskeið

Í Vinnustaðaskóla Akademias eru yfir 200 rafræn námskeið á Íslensku, talsett og textuð á 29 tungumálum.

Ofurfyrirmæli – betri svör frá gervigreind

Útgáfudagur: 16/10/26
Síðast uppfært: 22/10/26

Á námskeiðinu Ofurfyrirmæli lærir þú að skrifa skýr og markviss fyrirmæli fyrir gervigreind svo þú fáir svör sem nýtast þér betur. 
Þú kynnist fjórum einföldum aðferðum sem hjálpa þér að lýsa verkefninu, veita nauðsynlegt samhengi og skilgreina hvernig niðurstaðan á að líta út. Einnig færðu hagnýt ráð til að bæta fyrirmælin, spara tíma og nýta gervigreind betur í daglegum verkefnum.

Námskeiðið er sérvalinn hluti af námskeiðinu Ofurkraftar með gervigreind.

Kennari:

Þórarinn Hjálmarsson, forstöðumaður stjórnenda- og tæknifræðslu hjá Akademias