Fræðsluþættir

Rafræn námskeið

Í Vinnustaðaskóla Akademias eru yfir 200 rafræn námskeið á Íslensku, talsett og textuð á 29 tungumálum.

Innleiðing gervigreindar á vinnustöðum

Útgáfudagur: 28/10/26
Síðast uppfært: 29/10/26

Námskeiðið fjallar um hvernig færa má gervigreindarnotkun frá stökum tilraunum yfir í breytingar á verkferlum, hlutverkum og ábyrgð. Þú skoðar hvernig finna má mælanlegt rekstrarvandamál, velja hentugan feril og kortleggja skref hans til að greina bið og flöskuhálsa. Síðan metur þú virði, núning, fýsileika og áhættu, endurhannar ferilinn og skiptir verkum milli fólks, hefðbundins hugbúnaðar og gervigreindar. Að lokum skilgreinir þú ábyrgð, setur upp afmarkaða tilraun með mælikvörðum og skoðar hvernig lærdómur og sparaður tími nýtast í áframhaldandi breytingum.

Fyrir hverja

Námskeiðið er ætlað stjórnendum og fólki sem vill leiða breytingar á vinnustað með innleiðingu gervigreindar. Það hentar þeim sem vilja skoða hvernig gervigreind getur stutt rekstur, þjónustu eða stjórnun og hvernig breyta þarf verkferlum til að ávinningur skili sér. Þú vinnur með raunverulegan feril úr þínu fyrirtæki, greinir hvar bið eða endurvinna verður og metur hvernig ábyrgð og verkaskipting gætu breyst. Ef þú berð ábyrgð á teymi eða ferli færðu aðferðir til að velja afmarkaða tilraun, skilgreina mælikvarða og taka upplýsta ákvörðun um næstu skref.

Hvað lærir þú

  • Greina muninn á getu gervigreindar og getu fyrirtækis til að nýta hana.

  • Velja feril með skýru upphafi og endi, sýnilegum núningi og viðráðanlegri áhættu.

  • Kortleggja feril í fimm til sjö skrefum og greina bið, afhendingu, ákvarðanir og endurvinnu.

  • Meta tækifæri út frá virði, núningi, fýsileika og áhættu.

  • Endurhanna feril með því að ákveða hvað megi fella niður, einfalda, sjálfvirknivæða eða fela gervigreind og fólki.

  • Skilgreina ábyrgð fólks á gæðum gervigreindar og ákvörðunum í ferlinu.

  • Setja upp afmarkaða tilraun með tilgátu, mælikvörðum og stöðvunarskilyrðum.

  • Tengja sparaðan tíma við skýrt val um þjónustu, afköst, kostnað eða ný verkefni.

Fræðsluþættir

  • AI - Gervigreind

  • Að starfa í umhverfi breytinga

  • Verkefnastjórnun

Kennari

Gísli Ragnar Guðmundsson er gervigreindarsérfræðingur hjá Almannarómi og leiðir þátttöku Íslands í New Nordics AI, samnorrænni gervigreindarmiðstöð. Hann hefur fjölbreytta reynslu af ráðgjöf, fræðslu og nýsköpun og kom að mótun fyrstu aðgerðaáætlunar Íslands um gervigreind. Hann leggur áherslu á hagnýta og ábyrga notkun gervigreindar til að efla starfsfólk og bæta þjónustu.