Fræðsluþættir

Rafræn námskeið

Í Vinnustaðaskóla Akademias eru yfir 200 rafræn námskeið á Íslensku, talsett og textuð á 29 tungumálum.

ChatGPT - Í vinnunni

Útgáfudagur: 03/11/26
Síðast uppfært: 03/11/26

Námskeiðið sýnir hvernig færa má notkun ChatGPT frá einföldum spurningum yfir í vel skilgreind verkefni með verklýsingu sem byggir á markmiði, samhengi, skilyrðum og formi. Þú kynnist leiðum til að gefa ChatGPT samhengi með leiðbeiningum, minni, projects, plugins, skills og skrám, auk þess að vinna með gögn, rannsaka efni og láta Work, Tasks, Sites og Codex skila verkefnum og verkfærum. Dæmi úr markaðsmálum, fjármálum, mannauði og sölu sýna hvernig lesa á niðurstöður yfir, sannreyna tölur og heimildir, forðast ágiskanir og halda ábyrgð á því sem fer frá þér.

 

Fyrir hverja

Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem vill nýta ChatGPT við endurtekin verkefni og dagleg vinnugögn, meðal annars við gerð texta, greiningu skjala og talna, undirbúning funda og eftirfylgni. Dæmin taka mið af verkefnum í markaðs-, fjármála-, mannauðs- og sölustarfi, svo og samstarfi þar sem sameiginlegar leiðbeiningar, skrár og verkferlar nýtast. Það hentar þeim sem þurfa að vinna úr upplýsingum, útbúa drög eða skjöl og yfirfara niðurstöður áður en þær eru notaðar eða sendar áfram.

 

Hvað lærir þú

  • Útbúa verklýsingu með markmiði, samhengi, skilyrðum og formi.

  • Stýra því hvaða upplýsingar ChatGPT man og notar í verkefnum.

  • Greina skjöl og töflur með því að biðja um tilvísanir eða lýsingu gagna.

  • Yfirfara útreikninga, heimildir og forsendur áður en niðurstöður eru notaðar.

  • Setja upp endurtekin verkefni í Tasks og skilgreina hvenær þau keyra.

  • Velja milli Chat, Work og Codex út frá eðli verkefnis.

  • Athuga hvort vinnustaðurinn leyfi notkun gagna áður en þau eru sett inn.

 

Fræðsluþættir

AI - Gervigreind

Kennari

Jóhann Tómas Portal

 

Jóhann er meðstofnandi og tæknistjóri NoLimit og jafnframt meðstofnandi og tæknistjóri Drífu. Hann stundar tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík og hefur meðal annars hannað kerfisarkitektúr Drífu og þróað stóran hluta lausnarinnar frá grunni, allt frá bakenda og notendaviðmóti til gagnatenginga og rekstrarinnviða. Hann leggur áherslu á að sýna hvernig gervigreind og stafræn verkfæri geta leyst raunveruleg verkefni í daglegum störfum.