Í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Leiðtogi í Upplifunarhönnun í stað- eða fjarnámi
Í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs.
Námið er samstarfsverkefni fjölda sérfræðinga og fyrirtækja sem vilja efla aðferðafræði við mótun upplifunar á Íslandi. Lögð er áhersla á hvernig hægt er að skapa eftirminnilega og minnistæða upplifun af stöðum/svæðum, þjónustu, rýmum og viðburðum sem dæmi. Ennfremur er lögð áhersla á bæði stór verkefni og smá, fyrir fyrirtæki, stofnanir og fagfélög, sveitarfélög og hið opinbera, innlend jafnt sem erlend.
Aðferðafræðin byggir á stuttum hópverkefnum, fyrirlestrum og samtölum við sérfræðinga innlenda og erlenda. Aðferðafræðin leggur áherslu á samskiptahæfni, úrlausnir vandamála og greiningu tækifæra, gagnrýna- og skapandi hugsun.
Umsjónarmenn eru Rósbjörg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Cognitio og Partner fyrir Social Progress Imperative á Íslandi og Eyþór Ívar Jónsson, Vice President fyrir ráðstefnur hjá European Academy of Management og forseti Akademias.
Leiðbeinendur:
Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi og athafnamaður
Veigar Margeirsson, VP Pitch Hammer Music
Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður
Leifur Welding, eigandi W Concept Creations
Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs
Hlín Helga Guðlaugsdóttir, upplifunarhönnuður
Katrín Ólína Pétursdóttir, hönnuður
Sigurður Þorsteinsson, partner hjá Design Group Italia
Patrick Delaney, Managing partner Soolnua
Pádraic Gilligan, Managing partner, Soolnua
Rósbjörg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Cognitio
Heimir Sverrisson, Irma Studio
Eyþór Ívar Jónsson, Vice President fyrir ráðstefnur hjá European Academy of Management
Guðmundur Arnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Akademias
Leiðbeinendur námsins eru 10 - 15 talsins sem eru sérfræðingar í að hanna, skipuleggja og stýra upplifun. Tveir til þrír leiðbeinendur halda utan um hvern áfanga sem byggja á reynslusögum og raundæmum.
Áfangar:
- Viðburðir og verkstjórnun (3 klst.) – 10. mars
- Upplifun og minningar (3 klst.) – 11. mars
- Hugmyndavinna og teymi (3 klst.) – 17. mars
- Sagan og Sviðsmyndin (3 klst.) – 18. mars
- Leikstjórnun í Upplifunarhönnun (3 klst. - 24. mars
- Verðmætasköpun og upplifunarmenning (3 klst.)– 25. mars
+ Kynningar á verkefnum
HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
Námskeiðið byrjar 10. mars og er kennt á miðvikudögum 13:00 – 16:00 og fimmtudögum 9:00 – 12:00 fram til 25. mars.
Námið er í boði sem staðnám, fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið. Þátttakendur geta því tekið þátt með þeirri leið sem hentar fyrir hvern tíma án þess að þurfa tilkynna sérstaklega um form þátttöku hverju sinni.
Námskeiðið er 21 klst., þ.e. 6 áfangar, 3 klst. hver áfangi og kynning á verkefnum.
Námsmat: Hópverkefni í tímum og lokaverkefni (einstaklings- eða hópverkefni).
Námskeiðagjöld: 290.000 kr (Snemmskráningargjald 190.000 kr. til 30. janúar).
Leiðbeinendur
Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi og athafnamaður
Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður
Hlín Helga Guðlaugsdóttir, upplifunarhönnuður
Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs
Leifur Welding, Eigandi W Concept Creations
Sigurður Þorsteinsson – Partner hjá Design Group Italia
Veigar Margeirsson, VP Pitch Hammer Music
Katrín Ólína Pétursdóttir, hönnuður
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Heimir Sverrisson, Irma Studio
Rósbjörg Jónsdóttir, Framkvæmdastjóri Cognitio
Guðmundur Arnar Guðmundsson, Akademias